26 Október 2015 12:16

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærkvöld tilkynning um innbrot í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Húsráðandi kvaðst sakna flatskjás, leikjatölvu, fartölvu og fleiri muna. Hann hefði farið frá án þess að læsa íbúðinni og þegar hann hefði snúið aftur hefði allt verið á hvolfi og umræddir munir horfnir. Málið er í rannsókn.