15 Desember 2008 12:00

Nokkuð er um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu. Þjófum er ekkert heilagt og þeir stela jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta. Þetta verða eigendur eða umráðamenn ökutækja að hafa hugfast og muna að skilja ekki verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. Sömuleiðis er rétt að benda á mikilvægi þess að skilja bíla frekar eftir á upplýstum bílastæðum, ef þess er nokkur kostur. Þjófum finnst nefnilega fátt betra en að athafna sig í myrkrinu þar sem ekki sést til þeirra.

Jafnvel jólagjafir fá ekki að vera í friði.

Myndavélar og tölvur freista þjófa.

Bíl lagt á öruggum stað í dagsbirtu.

Er þetta öruggur staður eftir að myrkur er skollið á?