31 Október 2016 10:44

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærdag tilkynning um innbrot í Vélsmiðju Sandgerðis. Hinn óboðni gestur hafði komist inn með því að brjóta rúðu í húsnæðinu. Fjármunir höfðu verið teknir úr fyrirtækinu en ekki var vitað með vissu um hve háa fjárhæð var að ræða. Lögreglan hafði upp á geranda sem reyndist vera ungur að árum og var forráðamönnum hans svo og barnaverndarnefnd gert viðvart, auk þess sem lögregla ræddi við hann.