8 Desember 2009 12:00

Í nótt var brotist inn í Vínbúðina í Hveragerði og þaðan stolið áfengi.  Um kl. 00:35 bárust boð um innbrot í Vínbúðina sem er til húsa hjá N1 við Breiðumörk.  Þegar lögregla kom á staðinn var opinn hurð og ljóst að brotist hafði verið inn í verslunina.  Enginn var þar inni en ljóst að áfengi hafði verið stolið.  Á öryggismyndavélum sást er tveir menn komu að húsinu og spenntu upp hurð á lager.  Síðan koma þrír menn til viðbótar sem fóru inn.  Mennirnir huldu allir andlit sitt og voru með hanska á höndum.  Slóð þjófanna var rakin að Suðurlandsvegi þar sem þeir hafa lagt bifreið, sem þeir hafa verið á, meðan þeir fóru í innbrotið.  Þrátt fyrir leit og eftirgrennslan fannst bifreiðin ekki.  Talið er að þjófarnir hafi haft á brott með sér um átta til níu kassa af sterku áfengi.  Allar líkur eru á að þarna hafi verið um skipulagt innbrot að ræða.  Lögreglan biður alla þá sem veitt hafa athygli bifreið vestan við hringtorgið á Suðurlandsvegi við Hveragerði á tímabilinu frá kl. 00:00 – 00:35 að hafa samband í síma 480 1010.