16 Janúar 2020 10:05

Í janúar hefur lögreglan á Vesturlandi fengið nokkrar tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir í umdæminu. Í einu tilviki var um innbrot og skemmdarverk að ræða.

Þetta var í Borgarnesi og á Akranesi en rétt að allir sem einn hafi vara á sér og muni að læsa dyrum, loka gluggum og muna einnig eftir að læsa geymslum og bílskúrum.

Í síðustu viku fengum við tilkynningar frá íbúum við Bárugötu á Akranesi og Borgarvík í Borgarnesi.

Í þessari viku hafa okkur borist tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir að næturlagi á Akranesi. Tekið var í hurðarhún á húsi við Höfðagrund og eins við Grenigrund.

Í öðru tilvikinu var um tvo menn var að ræða að sögn tilkynnanda, annar sagður hafi verið hávaxinn í svartri hettupeysu en hinn þybbinn í grárri hettupeysu. Tilkynnandi sagði þá hafa verið að taka í hurðarhún útidyrar og þegar hann leit út um gluggann sá hann þá við bílskúr hússins. Svo virðist sem þessir aðilar fari um stíga og garða og kanni hvort opið eða ólæst sé hjá fólki.

Sérstaklega þarf að passa upp á innganga baka til svo sem frá görðum og einnig passa glugga sem mögulegt væri að komast inn um ef þeir eru ekki vel lokaðir.

Við leituðum þessara manna en án árangurs. Gerum því nauðsynlegar en einfaldar varúðarráðstafanir.