19 Október 2011 12:00

Milli kl. 00:30 og 08:00 í morgun var brotist inn á bílaverkstæði  Bíliðjunar við Unubakka 48 í Þorlákshöfn og þaðan stolið lykli að rauðri Mazda bifreið sem stóð fyrir utan verkstæðið.  Skráninganúmer voru tekin af annari bifreið, sem var þar hjá, og þeim komið yfir á Mazda bifreiðina.  Að því loknu ók þjófurinn af stað og í burtu frá verkstæðinu.  Sömu nótt var brotist inn í veitingastaðinn Happy hour sem er í sömu götu nánar tiltekið Unubakka 4.  Þaðan var stolið 50 tommu flatskjá og nokkur magni af áfengi.  Að öllum líkindum hefur sami maður verið þar að verki og í Bíliðjunni og hugsanlega einhverjir með honum.  Lögreglan á Selfossi biður þá sem veitt geta upplýsingar um óeðlilegar mannaferðir í Unubakka og í Þorlákshöfn á tilgreindu tímabili síðastaliðnu nótt eru beðnir að hringja í síma lögreglunnar 480 1010.