8 Október 2004 12:00

Lögreglan í Bolungarvík hefur upplýst innbrotin í Félagsmiðstöðina Tópas og golfskálann í Bolungarvík. Brotist var inn á báðum stöðum aðfaranótt 20. sepember s.l. og stolið þaðan tölvum og öðrum verðmætum.  

Eftir að ábendingar bárust frá almenningi fannst hluti þýfisins og í framhaldi af því beindist grunur lögreglu að tveimur mönnum sem búsettir eru í Bolungarvík.  Við frekari rannsókn málsins viðurkenndu þessir aðilar að hafa verið þarna að verki og eru málin þar með upplýst.