30 Nóvember 2007 12:00

Nú síðdegis úrskurðaði Héraðsdómur Suðurlands karlmann á þrítugsaldri í 3ja vikna gæsluvarðahald vegna gruns um aðild hans að fjölda innbrota í Árnes- og Rangárvallasýslum síðustu daga.  Lögreglan á Selfossi vinnur að rannsókn þessara mála. 

Maðurinn var handtekinn að morgni 29. nóvember, er komið var að honum sofandi ölvunarsvefni á innbrotsvettvangi.  Fljótlega náði lögreglan að mynda tengsl við fjölda innbrota sem tilkynnt hafði verið um daginn áður í Árnes- og Rangárvallasýslum.  Talið er fullvíst að fleiri aðilar tengist málinu og er þeirra ákaft leitað.   Í tengslum við rannsókn málsins lýsir lögreglan á Selfossi eftir sendibifreið af gerðinni Renault Master, hvítri að lit, árgerð 2007 Sendibifreiðin ber skráningarmerkið TV-Z28, hugsanlega hefur þó verið skipt um skráningarmerki á bifreiðinni.

Allir þeir sem veitt geta upplýsingar um ferðir ofangreindrar bifreiðar frá 27. nóvember s.l. eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi, í síma nr. 480-1010.  Bifreiðinni var upphaflega stolið í Reykjavík þann sama dag.