11 September 2003 12:00

Innbrotin, tvö, sem framin hafa verið í húsnæði Grunnskólanns á Ísafirði undanfarna daga eru upplýst.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum voru framin innbrot í húsnæði skólans aðfaranótt 6. september sl. og aftur aðfaranótt 10. sama mánaðar.  Mikið tjón hlaust af þessum innbrotum báðum.  Svo virðist sem tilgangur þeirra hafi verið að leita að lyfjum í skólanum.

Seint í gærkveldi upplýsti lögreglan á Ísafirði bæði innbrotin.  Karlmaður á fertugsaldri hefur játað að hafa verið þar að verki einsamall.  Umræddur aðili hefur margsinnis komið við sögu lögreglunnar vegna ýmissa brota, s.s fíkniefna- og, auðgunarbrota.