9 September 2003 12:00

Mánudaginn 8. september upplýsti lögreglan í Keflavík í samvinnu við Tollpóststofuna í Reykjavík innflutning á 30 Ecstasy töflum sem bárust með bréfasendingu frá Póllandi. í tengslum við málið voru tveir pólskir menn handteknir í Grindavík og viðurkenndi annar þeirra að vera eigandi að eiturlyfjunum, sem vinur hans í Póllandi hafi sent sér.  Vildi hinn kærði ekki segja til nafns hans.  Málið telst upplýst.