Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum. Myndin var tekin í síðustu viku.
2 Febrúar 2021 11:56

Lögreglan á Norðurlandi Eystra ásamt Vegagerðinni hafa lokað þjóðvegi 1 frá Námaskarði að gatnamótum Vopnafjarðarafleggjara. Hjáleið er um Norðausturströndina, Húsavík, Þórshöfn og Vopnafjörð. Ástæðan fyrir þessari lokun eru vísbendingar eru um að hreyfing sé kominn á klakastíflu sunnan við brúna sem fer yfir Jökulsá á Fjöllum. Verið að er að kanna aðstæður og Veðurstofan fylgist vel með mælitækjum í og við ána.