16 Desember 2009 12:00

Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð í Glerárhverfi í gærkvöldi eftir að grunsemdir höfðu kviknað um fíkniefnamisferli þar.
Við húsleitina fundust rúmlega 120 grömm af hassi og smáræði af hvítum efnum, en einnig var ein kannabisplanta í ræktun í íbúðinni og nokkuð af kannabisfræjum í lausu. Lögreglan haldlagði auk þess peninga sem hún telur líklegt að séu ágóði af fíkniefnasölu. Húsráðandi, maður um tvítugt, var handtekinn vegna málsins og fluttur á lögreglustöð en sleppt að lokinni skýrslutöku. Málið er í rannsókn.
 
Í gær stöðvaði lögreglan á Akureyri einnig tvo karlmenn grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar maðurinn er um fimmtugt en hinn um þrítugt og voru þeir báðir stöðvaðir í akstri innanbæjar. Mál þeirra fara hefðbundna leið þegar niðurstöður úr blóðsýnum liggja fyrir.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005, en það er símsvari sem má hringja í nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.