9 Maí 2012 12:00

Kannabisræktanir eru nú í auknum mæli settar upp í fjölbýlishúsum. Í þeim er oft að finna 20-100 kannabisplöntur en undir starfsemina er lagt rými sem telur u.þ.b. 20-50 fm. Sá sem að þessu stendur hverju sinni býr ýmist í íbúðinni eða notar hana eingöngu fyrir ræktunina. Iðulega er lagt í mikla vinnu og kostnað til að fela ræktunina og því getur reynst  erfitt að greina ummerkin um hana. Oftast er um leiguíbúðir að ræða og verða þær ósjaldan fyrir miklum skemmdum vegna raka, hita, festinga á ræktunarbúnaði og annars frágangs.

Ef íbúar í fjölbýlishúsum verða varir einhverra ummerkja um hugsanlega kannabisræktun skal tilkynna þær grunsemdir til lögreglu. Minnt er á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.