8 Júní 2015 13:41

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði kannabisræktun í húsnæði í umdæminu í gær. Upphaf málsins var að rúmlega tvítugur karlmaður var stöðvaðir í akstri við hefðbundið eftirlit. Hann framvísaði fjórum grömmum af kannabisefni, en var flóttalegur og svör hans ótrúverðug þegar spurt var nánar út í ferðir hans og uppruna efnanna.

Að fenginni heimild var leitað í húsnæði því sem maðurinn leigir og fundust þar nær fjörutíu kannabisplöntur. Hann játaði ræktunina og haldlagði lögregla bæði plönturnar og munina sem notaðir voru við ræktunina.

Annar karlmaður á svipuðum aldri var svo handtekinn í öðru máli, þar sem hann var að sjúga hvítt efni upp í nefið þar sem hann sat undir stýri. Um var að ræða amfetamín og var hann handtekinn. Við öryggisleit fannst svo amfetamín í fórum hans

 

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.