21 Desember 2015 11:31

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í umdæminu í lok síðustu viku. Um var að ræða á annað hundrað plöntur sem ræktaðar voru í fjórum herbergjum íbúðarhúsnæðis. Tryggilega hafði verið gengið frá öllum samskeytum þannig að lítil sem engin kannabislykt fannst utan herbergjanna fjögurra þar sem ræktunin fór fram. Íbúi í húsnæðinu játaði aðild sína að málinu, sem telst upplýst.

Mikið magn af búnaði var haldlagt auk plantnanna. Fenginn var gámur á staðinn til að flytja tæki og tól til förgunar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005800-5005.  Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.