5 Júlí 2018 10:59

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið stórfellda kannabisframleiðslu sem átti sér stað í heimahúsi í Sandgerði. Lögreglumenn í hefðbundnu eftirliti urðu varir við megna kannabislykt og þegar betur var að gáð stóð yfir umfangsmikil kannabisræktun í húsinu. Lagði lögregla hald á vel á annað hundrað kannabisplöntur, græðlinga, fjármuni sem og skotvopn. Tveir menn hafa verið handteknir og yfirheyrðir vegna málsins sem er í rannsókn.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaus til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.