21 Febrúar 2011 12:00

S.l. föstudag stöðvaði lögreglan á Akureyri kannabisræktun í íbúð á Akureyri. Hald var lagt á 14 kannabisplöntur, nokkra græðlinga og búnað til ræktunar. Við leit í íbúðinni var síðan lagt hald á um 20 grömm af marihuana sem er talið vera afgangur af fyrri ræktun á sama stað. Tveir menn á þrítugsaldri viðurkenndu við yfirheyrslur að hafa staðið að ræktuninni. Á laugardaginn gripu svo lögreglumenn inn í fíkniefnaviðskipti sem áttu sér stað á miðri íbúðargötu á Akureyri. Þrír aðilar voru handteknir og í framhaldinu var framkvæmd húsleit á heimili þess sem var að selja efnin. Þar var lagt hald á um 70-80 grömm af marihuana. Efninu hafði verið pakkað í sölueiningar og var falið á víð og dreif um íbúðina. Aðfararnótt sunnudagsins s.l. var lögreglan kvödd að fjölbýlishúsi á Akureyri vegna kvartana undan samkvæmishávaða. Er lögreglan kom á staðinn kom  í ljós að fíkniefnaneysla hafði átt sér þar stað. Þrír aðilar voru handteknir og smáræði af fíkniefnum var haldlagt, einnig tæki og tól til neyslu. Í framhaldinu var samkvæmið leyst upp. Öll þessi þrjú mál teljast upplýst.

Á síðasta ári lögðu lögregluembættin á norðurlandi hald á rúmlega eitt kíló af marihuana sem er mun meira en árin þar á undan en árið 2009 voru haldlögð rúmlega 100 grömm og 30 grömm árið 2008. Þarna er því um gríðarlega aukningu að ræða en þó í takt við það sem lögreglan er að sjá gerast í fíkniefnaheiminum hér á landi. Magn annarra haldlagðra fíkniefna er svipað á milli undanfarinna ára.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímsvarann 800-5005 og netfangið info@rls.is þar sem fólk getur komið ábendingum og grunsemdum um fíkniefnamisferli nafnlaust á framfæri.