4 Desember 2020 12:16

Karl Steinar Valsson hefur verið ráðin yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra.

Karl Steinar á langan og farsælan 35 ára feril innan lögreglunnar. Hann hefur verið stjórnandi ýmissa eininga frá 1997 nú síðast yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar áður starfaði hann sem tengslafulltrúi Íslands hjá Europol ár árunum 2014-2018 þar sem hann var meðal annars ábyrgur fyrir stefnumótun og framtíðarstefnu Íslands á sviði samvinnu við aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Auk lögreglumenntunar hefur Karl Steinar fjölbreytta menntun að baki, meðal annars í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, MBA frá Háskólanum í Reykjavík sem og stjórnendaþjálfun frá Bandarísku alríkislögreglunni.

Karl Steinar hefur störf hjá embætti ríkislögreglustjóra 1. janúar 2021.

Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra.