23 Júlí 2014 12:00

Kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur staðfest að lík sem fannst við Háöldu suðvestur af Landmannalaugum fyrir viku sé af bandarískum ríkisborgara, Nathan Samuel Foley-Mendelssohn.  Ekkert hafði spurst til hans frá 10. september 2013 er hann var staddur í Landmannalaugum.  Víðtæk leit var gerð að Nathan á sínum tíma við erfiðar aðstæður þar sem vetrarveður hafði gengið yfir svæðið á þeim tíma sem talið er að Nathan hafi lagt af stað í göngu frá skálanum í Landmannalaugum.  Nathan var fæddur árið 1979.