12 Apríl 2012 12:00

Kl. 12:37 barst tilkynning um köfunarslys í Silfru á Þingvöllum.  Lögregla frá Selfossi og sjúkrabílar þaðan auk sjúkraliðs frá SHS fóru á vettvang.  Einnig var Þyrla Landhelgisgæslu kölluð til og var sjúklingurinn, sem er erlend kona á fimmtugsaldri , flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlunni.  Hún andaði þá af sjálfsdáðum en meðvitund var mjög skert.    Lögregala er enn á vettvangi og unnið er að rannsókn málsins.  Frekari upplýsingar um tildrög þess liggja ekki fyrir.