1 Júní 2012 12:00

Tilkynnt var til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni að kona væri læst inni á salerni í kvennaklefa í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ. Óttast var að súrefnislaust gæti orðið á salerninu. Lögregla fór þegar á staðinn. Þar hafði þá kona, ásamt þremur börnum, verið læst inni á salerninu í um 45 mínútur. Starfsmaður Sundmiðstöðvarinnar hafði loks náð að brjóta hurðina og hleypa þeim út.