23 Maí 2012 12:00

Rannsókn á láti fanga á Litla Hrauni í síðustu viku miðar áfram.  Lögreglustjórinn á Selfossi hefur farið fram á að þeir tveir menn sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða mannsins verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna.  Mennirnir tveir hafa verið leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Suðurlands.  Dómari tók sér frest til morguns til að úrskurða um gæsluvarðhaldskröfu lögrelgustjóra.  Rannsókn málsins er mjög vandmeðfarin og er á viðkvæmu stigi.  Af þeim ástæðum er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um framgang rannsóknarinnar.