21 Júlí 2010 12:00

Lögreglan á Selfossi gerði í gærkvöldi húsleit í íbúðar- og útihúsum á sveitabæ í Hrunamannahreppi.  Tilefni leitarinnar var að upplýsingar höfðu borist um að þar á bæ færi fram landabruggun.   Við leitina fundust um 800 lítrar af gambra og um 100 lítrar af landa sem að styrkleika virðist um 35 %.   Jafnframt fannst mikið magn tækja og tóla til framleiðslunnar auk tilheyrandi efna sem í hana þarf.  Ábúendur á bænum, sem báðir eru á sjötugsaldri og hafa áður orðið uppvísir af slíkri iðju, voru handteknir og yfirheyrðir á lögreglustöðinni á Selfossi og er rannsókn málsins á lokastigi.  Það verður síðan sent ákæruvaldinu til meðferðar.