6 Júní 2012 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af þremur karlmönnum um tvítugt sem allir reyndust vera með ólögleg vímuefni í fórum sínum inni  á skemmtistöðum í umdæminu. Einn þeirra framvísaði amfetamíni, sem lögregla haldlagði. Annar var með lítra af landa og hinn þriðji var einnig með landabrúsa meðferðis. Lögregla hellti landanum niður í viðurvist mannanna. Þá var forráðamönnum viðkomandi skemmtistaða gert viðvart um atvikin.