1 Ágúst 2013 12:00

Bílstjóri erlendrar langferðabifreiðar sem uppvís varð af því að losa úr frárennslistanki bifreiðarinnar í vegkanti við Selfoss þann 29. Júlí s.l.  var yfirheyrður í, með aðstoð túlks,  gær í síma.   Hann viðurkenndi brot sitt og með aðstoð lögreglunnar á Egilsstöðum var honum boðið að ljúka málinu með því að gangast undir  150 þúsund króna sektargerð vegna brots á 18. gr. reglugerð um lögreglusamþykktir.  Bílstjórinn féllst á þessi málalok og vildi taka sérstaklega fram hversu leitt honum þætti að þetta hafi gerst,  um mistök hans hafi verið að ræða.