1 Júní 2013 12:00

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir franskri konu sem hefur haldið til í Heydal í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi þessa dagana.  Konan mun hafa ætlað í stutta gönguferð frá Heydal um kl.10:00 í gærdag.  Þegar konan skilaði sér ekki aftur hófu ábúendur í Heydal og nágrenni eftirgrennslan og leit.  Á ellefta tímanum í gærkveldi var lögreglunni tilkynnt um konuna og að leit heimamanna hafi ekki borið árangur.  Svæðisstjórn björgunarsveitanna (Landsbjargar)  á norðanverðum Vestfjörðum var kölluð út og í framhaldinu fóru tugir björgunarsveitarmanna til leitar í Heydal og nágrenni.  

Í nótt voru 30 björgunarsveitarmenn við stanslausa leit á svæðinu.  Sérstakir leitarhundar voru og eru notaðir við leitina.  Þá tók Landhelgisgæslan þátt í leitinni með þyrlu í alla nótt.  Nú eru um 50 björgunarsveitarmenn við leit og er búist við að þeir verði um 100 um hádegið.  Björgunarsveitarmönnum er alltaf að fjölga á svæðinu enda koma þeir frá öllum Vestfjörðum og einnig frá Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu.

Hugsanlegt er að konan hafi gengið út á þjóðveginn í Mjóafirði og fengið far með einhverjum þeirra bifreiða sem leið áttu um Ísafjarðardjúpið í gær.

Konan heitir Maylis Lasserre.  Hún er grannvaxin, um 170 cm á hæð, hrokkinhærð með fremur sítt skolleitt hár sem hún oftast greiðir í tagl.  Hún var í gær klædd gallabuxum, og prjónasjali.

Þeir sem hugsanlega hafa orðið konunnar varir eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum í síma 450 3730 eða 112.  Þessu er sérstaklega beint til ökumanna sem leið áttu um Ísafjarðardjúpið í gær.

Mynd af Maylis Lasserre.