21 Október 2007 12:00

Maður sem leitað var að í morgun í tengslum við umferðarslys sunnan við Stóru Laxá er kominn fram.

Björgunarsveitir voru í morgun ræstar út í uppsveitum Árnessýslu til leitar að ökumanni bifreiðar sem fannst í skurði skammt sunnan við Stóru Laxá.   Ummerki bentu til að bifreiðin hafi farið nokkrar veltur út af Skeiða- og Hrunamannavegi áður en hún lenti í skurðinum og að ökumaður hennar hafi farið frá henni fótgangandi.

Það var um kl. 05:20 sem lögreglan á Selfossi fékk upplýsingar um bifreiðina í skurðinum og samkvæmt upplýsingum sem nú hefur verið aflað fór ökumaður hennar, sem er karlmaður á þrítugsaldri,  frá Sumarbústað skammt frá Flúðum um kl. 04:30 í morgun. 

Það var síðan kl. rúmlega 9 í morgun sem upplýsingar bárust um að maðurinn væri kominn til Reykjavíkur heill á húfi og var leit þar með afturkölluð.   Lögreglan biður þá sem kynnu að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 480 1010