5 Mars 2013 12:00

Brotist var inn í allar geymslur fjölbýlishúss í Grindavík um helgina. Voru læsingar brotnar upp á þeim geymslum sem höfðu verið læstar. Hinir óboðnu gestir höfðu rótað til og haft á brott með sér lítlis háttar af áfengi. Einnig höfðu þjófarnir á brott með sér borvél og skrúfvél.

Við athugun lögreglunnar á Suðurnesjum kom í ljós að einnig hafði verið brotist inn í tvær geymslur í nágrenninu og þaðan stolið leikjatölvum, golfsetti og tölvuskjá. Málið er í rannsókn.

Skemmdir og þjófnaðir úr bílum

Nokkuð var um skemmdir á bifreiðum og þjófnað úr þeim í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Úr einni þeirra var stolið heyrnartólum, Ipod og fleiri munum. Þá var brotist inn í vöruskemmu í Grindavík, með því að skera gat á segldúk á stafni hennar. Þar inn stóð húsbíll. Hafði verið farið upp á þak hans, brotin upp topplúga og farið þar inn.

Loks var afturrúða brotin í bifreið sem stóð í yfirbyggðri bílageymslu. Grjót fannst við bíllinn, sem líklega hefur verið notað til að vinna skemmdarverkið. Málin eru öll í rannsókn.