23 Október 2007 12:00

Að kvöldi sl. sunnudags þann 21. október var lögreglu tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi hér í bæ.  Árásin mun hafa átt sér stað að morgni sama dags en talið er að kona á fertugsaldri hafi verið sleginn í höfuðið með gleröskubakka með þeim afleiðingum að hún höfuðkúpubrotnaði.  Hún mun hafa leitað til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja að kvöldi sama dags og var í framhaldi af því lögð inn vegna þeirra áverka sem hún fékk. Hún var hins vegar ekki talin

hættulega slösuð og er komin heim af sjúkrahúsinu.Sá, sem grunaður er um árásina var handtekinn skömmu síðar á veitingastað í bænum og var í haldi lögreglu fram á mánudag.  Um er að ræða karlmann á fertugsaldri og var hann látinn laus að skýrslutöku lokinni.

Framburður aðila um atburði er mjög óljós og hefur konan ekki enn viljað leggja fram formlega kæru. Lögregla rannsakar samt sem áður málið áfram þar sem um beinbrot er að ræða.