7 Október 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað í Hamravík í Grafarvogi sl. þriðjudag, 1. október, um kl. 14. Þar veittust tveir menn að þeim þriðja, en árásin átti sér stað utandyra (við hús nr. 44-52). Árásarþoli tilkynnti málið til lögreglu klukkan 14.26, en hugsanlegt er að árásarmennirnir hafi farið af vettvangi á ljósrauðri bifreið, mögulega Subaru Impreza.

Þeir sem kunna að hafa orðið vitni að árásinni, eða geta veitt upplýsingar um málið, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 eða senda tölvupóst á abending@lrh.is Upplýsingum má enn fremur koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar.