25 Ágúst 2015 13:28

Lögreglan á Suðurlandi og Kennslanefnd ríkislögreglustjóra vinna áfram úr ábendingum sem borist hafa vegna líkfundarins í Laxárdal í Nesjum þriðjudaginn 18. ágúst síðastliðinn.  Kennslanefndin hefur m.a. til skoðunar hvort um geti verið að ræða franskan ríkisborgara sem kom til landsins í byrjun október á síðasta ári. Kennslanefndin er að vinna með frönskum lögregluyfirvöldum vegna málsins sem og rannsóknarstofu í Svíþjóð sem framkvæmir m.a. DNA-greiningar fyrir sænsku Kennslanefndina.  Nokkurn tíma getur tekið að fá staðfest auðkenni þannig að unnt sé að bera kennsl á hinn látna. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Reykjavík 25. ágúst 2015

Gylfi H. Gylfason, formaður Kennslanefndar ríkislögreglustjóra
og
Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi.