6 September 2009 12:00

Fréttatilkynning.

Menningar- og fjölskylduhátíðin Ljósanótt 2009 lýkur í dag, sunnudag.  Að mati lögreglunnar á Suðurnesjum hafa hátíðarhöldin gengið vel fyrir sig.  Mikill fjöldi fólks var í miðbænum á laugardagskvöldinu en engin alvarleg mál komu upp.

Líkt og undanfarin ár var rekið ungmennaathvarf í samstarfi félagsmálayfirvalda, lögreglu og foreldrafélaga grunnskóla í Reykjanesbæ.  Afskipti voru með minna móti en um 20 ungmenni voru færð í athvarfið vegna ölvunar og útivistarbrota.

Skemmtanahaldið í miðbænum aðfararnótt sunnudagsins gekk einnig vel fyrir sig þannig að engin alvarleg mál komu upp.  Þrír gistu fangahús vegna ölvunar.

Hörð aftanákeyrsla varð á Reykjanesbraut rétt eftir miðnætti aðfararnótt sunnudagisins.  Fjórir voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar áverka. 

18 ára ökumaður var sviptur ökuleyfi undir morgun eftir að hafa verið mældur á 180 km hraða á Reykjanesbraut á móts við Innri-Njarðvík.

Í heild sinn er lögreglan ánægð með allt skipulag í tengslum við hátíðina.  Samstarf aðila sem komu að öryggismálum s.s. lögreglu, björgunarsveita, sjúkraliðs, landhelgisgæslu og starfsmanna Reykjanesbæjar var gott eins og undanfarin ár og dagskrá með þeim hætti að hátíðin stendur vel undir nafni sem menningar- og fjölskylduhátíð.  Lögregla þakkar öllum fyrir gott samstarf.

Reykjanesbær,  6. september 2009.

Karl Hermannsson, yfirlögregluþjónn

Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.