9 Maí 2008 12:00

Enn ber á því að ökumenn aki um á negldum hjólbörðum.  Frá 15. apríl síðastliðinn hefur verið óheimilt að nota neglda hjólbarða nema þess hafi verið þörf við sérstakar aðstæður.  Lögreglan á Selfossi mun eftir 15. maí næstkomandi kæra þá ökumenn sem staðnir verða að því að aka með neglda hjólbarða. Sekt við því er 5000 krónur fyrir hvern negldan hjólbarða.  Þannig gæti sektin farið í 20000 krónur ef allir fjórir hjólbarðar ökutækis eru negldir.  Skorað er á alla þá sem eiga eftir að skipta negldum hjólbörðum út fyrir sumarhjólbarða að gera það strax og komast hjá því að fá kæru fyrir þetta brot.