6 Júlí 2013 12:00

Í dag var farið í umferðareftirlit með þyrlu Landhelgisgæslunnar.  Flogið var með Suðurlandsvegi frá Selfossi austur á Mýrdalssand og upp í Landsveit.  Hraði ökutækja var mældur úr þyrlunni á flugi.  Einnig voru lögreglumenn með ratsjá sem notuð var á jörðu.  Á Mýrdalssandi voru tveir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur.  Annar ók á 111 km hraða og hinn á 112 km hraða.  Aðrir gátu státað af því að þurfa ekki að eyða peningum í sektir.  Umferðareftirlit af þessu tagi er mjög mikilvægt og nýtist vel í að fylgjast með utanvegaakstri.  Landhelgisgæsla og lögregla hafa undanfarin sumur átt mjög gott samstarf vegfarendum og öðrum til heilla.