1 Apríl 2005 12:00

Um hádegisbilið í dag framkvæmdi lögreglan á Ísafirði húsleit í einbýlishúsi einu á Suðureyri.  Húsleitin var gerð að fengnum húsleitarúrskurði Héraðsdóms Vestfjarða.  Við leitina fundust örfáaar kannabisplöntur sem voru undir sérstöku ljósi.  Við húsleitina fannst töluvert af áhöldum sem virðast hafa verið notuð til meðhöndlunar kannabisefna.  Engin fíkniefni fundust við leitina, utan jurtanna áðurnefndu. 

Íbúinn var ekki heima þegar húsleitin var gerð.  Hans er nú leitað vegna málsins.