6 Janúar 2014 12:00

 Klukkan 12:52 síðastliðinn föstudag var tilkynnt um umferðarslys á Biskupstungnabraut rétt ofan við brúna yfir Brúará.  Starfsmaður verktaka var á veginum að mæla í tengslum við vegagerð þegar hann varð fyrir bifreið á leið suðvestur veginn.  Lögreglan biður þá sem áttu þarna leið um á þessum tíma að hafa samband í síma lögreglu 480 1010 og veita upplýsingar um aðstæður á vettvangi í aðdraganda slyssins.