10 Október 2012 12:00

Aðfaranótt síðastliðins sunnudags kl. 03:53 kom í lögreglustöðina 16 ára gömul stúlka og tilkynnti að henni hefði verið nauðgað skömmu áður á grasflöt skammt frá skemmtistaðnum Hvíta Húsinu á Selfossi.  Stúlkan hafði verið inni á skemmtistaðnum en farið út undir lok dansleiksins.  Maður kom að stúlkunni og leiddi hana afturfyrir húsið þar sem hann nauðgaði henni.  Þegar í stað var farið með stúlkuna í Neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum þar sem fram fór læknisrannsókn og stúlkunni veitt aðhlynning. 

Stúlkan þekkti ekki brotamanninn en gaf greinargóða lýsingu á honum.  Böndin beindust fljótlega að 36 ára gömlum manni búsettum á höfuðborgarsvæðinu.  Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók manninn í Reykjavík í gærmorgun og hann var fluttur í lögreglustöðina á Selfossi þar sem hann var yfirheyrður.  Yfirheyrslur yfir manninum og vitnum stóðu fram eftir kvöldi í gær.  Maðurinn var látinn laus seint í gærkvöldi eftir húsleit á heimili hans.  Tæknideild LRH kom að rannsókninni m.a. með öflun lífsýna og úrvinnslu þeirra.   Rannsóknin er í góðum farvegi en lögreglan á Selfossi biður alla þá sem hugsanlega hafa verið vitni að aðdraganda málsins og séð til stúkunnar og karlmannsins um kl. 03:00 við skemmtistaðinn Hvíta Húsið að hafa samband í síma lögreglunnar 480 1010.