16 Júní 2015 17:08

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir sjónarvottum að átökum tveggja einstaklinga,. Átökin áttu sér stað í og við svarta Toyota Yaris bifreið á bifreiðastæði við Litlu-Kaffistofuna um kl.13:30 föstudaginn 12.júní sl. Er þess óskað að hver sá sem býr yfir upplýsingum vegna málsins hafi samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 444 2010 eða á netfang lögreglunnar  sudurland@logreglan.is.