9 September 2002 12:00

Seinni part laugardagsins 7. september sl. fann lögreglan á Ísafirði fíkniefni, n.t.t. rúmlega 1 gramm af tóbaksblönduðu hassi.

Fíkniefnin fundust eftir að lögreglan hafði stöðvað akstur bifreiðar á Ísafirði.  Í bifreiðinni voru tveir menn, annar 17 ára en hinn 22 ára gamall.  Leitað var að fíkniefnum í bifreiðinni og eins á báðum þessum mönnum.  Fíkniefnin fundust á þeim eldri og var hann færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu.  Hann viðurkenndi að hafa átt efnin og ætlað þau til neyslu.  Hann á von á viðeigandi refsingu vegna brots á lögum um ávana- og fíkniefni.

Sá sem var handtekinn með fíkniefnin hefur ekki áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála.