6 Febrúar 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns vegna rannsóknar á umferðarslysi á Fiskislóð í Reykjavík um helgina. Laugardaginn 2. febrúar kl. 15.30 var vínrauðum jepplingi, líklegast Suzuki, bakkað á unga stúlku á bifreiðastæði við verslunina Ellingsen á Fiskislóð. Ökumaðurinn kannaði ekki með ástand stúlkunnar heldur fór af vettvangi. Stúlkan leitaði á slysadeild síðar um daginn, en hún hefur ekki getað sótt skóla frá því að slysið varð.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444-1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is