10 September 2010 12:00

Skömmu fyrir kl. 20:00 sl. miðvikudagskvöld, 8. september, var kveikt í garðbekk við bakhurð Landakotsskóla. Ljóst er að talsvert hefur þurft af eldfimu efni til að kveikja eldinn þar sem bekkurinn var regnblautur fyrir. Ef ekki hefði verið fyrir snarræði íbúa hefði skaðinn geta orðið verulegur.Lögreglan biður þann eða þá er geta veitt upplýsingar um mannaferðir í kringum Landakotsskóla um þetta leyti á nefndum tíma að hafa samband í síma 444 1000.