8 Mars 2010 12:00

Lögreglan nýtur mikils trausts hjá almenningi en um það má lesa í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Spurt var um traust til fjórtán stofnana og embætta en 81% aðspurðra sögðust treysta lögreglunni og fékk hún bestu útkomuna að þessu sinni. Háskóli Íslands, sem jafnan hefur fengið bestu niðurstöðuna í þessum mælingum, fékk næstbestu útkomuna, eða 76%, en traust til annarra stofnana í könnuninni var á bilinu 5-70%.

Gallup hefur kannað traust til nokkurra stofnana í meira en hálfan annan áratug en traust almennings til lögreglunnar hefur aldrei verið meira en undanfarin fjögur ár, eða 78-81%. Á sama tíma og lögreglan nýtur mikils trausts hefur dregið úr trausti almennings til ýmissa stofnana undanfarin ár. Smellið hér lesa nánar um Þjóðarpúls Gallup.