12 Mars 2012 12:00

Lögreglan nýtur mikils trausts hjá almenningi en um það má lesa í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Spurt var um traust til fimmtán stofnana samfélagsins en 83% aðspurðra sögðust treysta lögreglunni en þetta er besta útkoman sem hún hefur fengið frá því að Gallup hóf að kanna traust til stofnana fyrir allmörgum árum. Traust almennings til lögreglunnar hefur raunar aldrei verið meira en undanfarin ár og mælst um 80%. Niðurstaðan í ár er enn betri og það er lögreglunni vitaskuld mikið gleðiefni. Smellið hér til að lesa nánar um Þjóðarpúls Gallup.