3 Mars 2008 12:00

Lögreglan nýtur mikils trausts hjá almenningi en um það má lesa í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Spurt var um traust til tíu stofnana en 80% aðspurðra sögðust treysta lögreglunni og fékk hún næstbestu útkomuna að þessu sinni. Flestir treysta Háskóla Íslands, eða 90%, en traust til annarra stofnana í könnuninni var á bilinu 9-68%.

Gallup hefur kannað traust til nokkurra stofnana í hálfan annan áratug en traust almennings til lögreglunnar hefur aldrei verið meira en nú. Það var 78% við síðustu mælingu í febrúar árið 2007 og hefur því hækkað um 2 prósentustig.