11 Október 2023 14:31

Lögreglu berast nú aftur tilkynningar um tölvupóst þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er ranglega titluð sem sendandi og skilaboðin ranglega merkt lögreglu, Dómsmálaráðherra og lýðveldi Íslands. Þessi skilaboð eru ekki frá ríkislögreglustjóra og viljum við vara fólk við að svara tölvupóstinum og við því að ýta á hlekki og viðhengi sem geta fylgt slíkum skilaboðum. Ef þú hefur fengið eða færð póst af þessum toga skaltu tilkynna hann sem ruslpóst/spam í póstforritinu þínu.

Mikilvægt er að skoða öll skilaboð og allan póst með gagnrýnum augum, ekki smella á hlekki eða viðhengi sem eru grunsamleg og alls ekki gefa upp kortaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar.

Við vekjum athygli á góðri fræslu á heimasíðu CERT um vefveiðar sem þessar: Vefveiðar (cert.is)

Sjá skjáskot af dæmi af svikpóst: