2 Nóvember 2007 12:00

Íslensk lögregluyfirvöld hafa undirbúið aðgerðir vegna komu norrænna félaga í vélhjólasamtökunum Hell’s Angels til landsins. Embætti ríkislögreglustjóra, sem fer með yfirstjórn aðgerðarinnar, hefur falið lögreglustjóranum á Suðurnesjum og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu framkvæmd einstakra þátta aðgerðarinnar.

Lögreglan á Suðurnesjum, ásamt lögreglu höfuðborgarsvæðisins og sérsveit ríkislögreglustjóra, gerðu húsleit í húsakynnum vélhjólaklúbbsins Fafner MC-Iceland í gær, í tengslum við fíkniefnarannsókn lögreglustjóra Suðurnesja. Sérsveit var kölluð til vegna hættu sem talin er stafa af meðlimum klúbbsins og þar sem húsnæðið hefur verið víggirt. Vegna starfsemi klúbbsins kallaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu til fulltrúa frá eldvarnareftirliti, rafmagnseftirliti, heilbrigðiseftirliti og byggingarfulltrúa. Á þessari stundu er ekki vitað um viðbrögð þessara aðila.

Greiningardeild ríkislögreglustjóra bárust fyrir skömmu, upplýsingar frá erlendum samstarfsaðilum, um að til landsins væri stefnt fjölda Hell´s Angels meðlima vegna afmælisveislu sem vélhjólaklúbburinn Fafner MC ætlar að halda um þessa helgi. Afmælisveislan á að fara fram í leiguhúsnæði klúbbsins að Hverfisgötu 61 í Reykjavík. Upplýsingar lögreglu benda til að íslenskum aðilum sé einnig boðið til veislunnar.

Dóms- og kirkjumálaráðherra ákvað í gær, að tillögu ríkislögreglustjóra, að taka upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen svæðisins. Heimild til þessa er í  samræmi við 2. mgr. 2. gr. Schengen samningsins, sbr. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 53/2002 um útlendinga, þar sem þessi atburður og þátttaka Hell´s Angels er talinn geta ógnað allsherjarreglu og þjóðaröryggi.

Skipulögð glæpasamtök

Hell’s Angels-vélhjólasamtökin halda uppi skipulagðri glæpastarfsemi víða um lönd. Samtökin falla undir þá skilgreiningu sem í gildi er innan Evrópusambandsins (ESB) um skipulagða glæpastarfsemi. Fyrir liggur dómur í Kanada þess efnis að Hell’s Angels séu skipulögð glæpasamtök. Félagar í samtökunum hafa víða hlotið þunga dóma m.a. fyrir morð og fíkniefnasmygl.

Samtökin tengjast m.a. fjárkúgunum, fíkniefnaviðskiptum, vændi og ofbeldisbrotum. Umsvif Hell’s Angels á Norðurlöndum á sviði skipulagðrar glæpastarfsemi fara vaxandi. Þá hefur komið til blóðugra uppgjöra félaga í ólíkum gengjum vélhjólamanna á Norðurlöndum. Starfsemi þessari og veisluhöldum fylgir fíkniefnaneysla og ógn við frið og allsherjarreglu.

Í Noregi og Danmörku hefur mikill meirihluti félaga í vélhjólasamtökunum Hell’s Angels hlotið dóma fyrir refsivert athæfi.

Í Noregi hefur vélhjólaklúbbum sem stunda skipulagða glæpastarfsemi fjölgað mjög á síðustu árum. Aukin umsvif og harðnandi samkeppni þeirra valda stjórnvöldum vaxandi áhyggjum. Yfirvöld dómsmála í Noregi ræða nú hvort stöðva beri alla félaga í vélhjólasamtökum, sem halda uppi skipulagðri glæpastarfsemi, við landamærin. Innan lögreglu þar er nú sömuleiðis rætt af auknum þunga um nauðsyn þess að öllum félögum í alræmdum, erlendum vélhjólagengjum verði neitað um landgöngu í Noregi. Er þá m.a. vísað til stefnu stjórnvalda í Kanada, sem líkt og hin íslensku neita félögum í vélhjólasamtökum á borð við Hell’s Angels um leyfi til landgöngu. Yfirvöld í Kanada telja að hver sá sem gerist félagi í vélhjólasamtökum á borð við Hell’s Angels, Outlaws og Bandidos geri sér ljóst að þar sé um að ræða “bræðralag glæpamanna”.

Þróunin á Norðurlöndum er í átt til hertra viðbragða við heimsóknum af þessu tagi og umsvifum vélhjólasamtaka, sem halda uppi skipulagðri glæpastarfsemi.

Sömu stefnu fylgt frá 2002

Tilraunir Hell’s Angels til að ná fótfestu á Íslandi má rekja ein fimm ár aftur í tímann, hið minnsta. Viðbrögð lögreglu hafa jafnan verið á sama veg. Í upphafi árs 2002 voru danskir félagar í samtökum þessum stöðvaðir við komu til landsins og þeim meinuð landganga. Þeir höfðu m.a. hlotið dóma fyrir morð, manndrápstilraunir, fíkniefnasmygl og ofbeldisbrot. Sama ár barst starfsfólki í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn hótun frá Hell’s Angels-samtökunum í Danmörku.

Í júlí 2002 var félögum í norskum samtökum, sem tengdust Hell’s Angels, meinuð landganga. Fimm norskum félögum í Hell’s Angels var vísað úr landi í desember 2003. Árið 2004 var dönskum félögum í vélhjólasamtökunum Hog Riders vísað úr landi við komu til Keflavíkur.

Reynslan kennir að hvarvetna sem Hell’s Angels og önnur sambærileg vélhjólasamtök ná fótfestu fylgir aukin skipulögð glæpastarfsemi í kjölfarið. Þeirri viðleitni samtakanna fylgir og jafnan stóraukin hætta á hótunum, fjárkúgunum og ofbeldi. 

Viðbrögð lögreglu á Íslandi voru ákveðin á grundvelli þeirra upplýsinga sem hér er að finna  og því mati að koma félaga í Hell’s Angels til Íslands og viðleitni samtakanna til að ná fótfestu hér á landi fæli í sér alvarlega ógn við samfélag og allsherjarreglu.