15 Nóvember 2018 22:36

Í dag er gleðidagur fyrir samfélagið okkar hér á Austurlandi en lögreglan á Austurlandi fékk í dag afhentan lögregluhundinn Byl en þar er langþráður draumur okkar að verða að veruleika. Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir lögreglumaður verður umsjónarmaður Byls. Það kom fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra sem afhenti lögregluhundinn til lögreglunnar á Austurlandi í dag að það megi  segja að Bylur hafi hæfileikana í genunum en foreldrar hans eru lögreglu og -fangelsishundarnir Þoka og Winkel sem bæði eiga glæsilegan feril að baki.