10 Maí 2007 12:00

Bifhjólanámskeið fyrir lögreglumenn var haldið á dögunum en að því stóð Lögregluskóli ríkisins í samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur voru átta en leiðbeinendur voru m.a. Árni Friðleifsson varðstjóri og Lúðvík Eiðsson lögreglufulltrúi. Námskeiðið stóð í eina viku en á því var kennd notkun bifhjóla við löggæslu. Í því felst m.a. góðakstur, forgangsakstur og umferðarpóstun fyrir fylgdarakstur. Sex þátttakendanna fara til starfa hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en tveir hjá lögreglunni á Suðurnesjum.