19 Október 2010 12:00

Brotist var inn í tvo bíla við Hrafnhóla á Selfossi síðustu helgi.  Úr öðrum þeirra var stolið fartölvu, sjónvarpsflakkara og fleiri munum en engu úr hinum bílnum.  Í gær fengu lögreglumenn upplýsingar um að fartölvan hefði fundist í öðru hverfi á Selfossi. Fljótlega beindist grunur að ákveðnum manni sem fannst skömmu síðar og var handtekinn.  Í kjölfar þess voru tveir aðrir handteknir.  Húsleitir voru framkvæmdar og báru þann árangur að allir hlutirnir sem stolið var auk þess sem smávegis af fíkniefnum fundust í einni íbúð.  Tveir til viðbótar þeim þrem sem voru handteknir voru boðaðir til yfirheyrslu.  Niðurstaða rannsóknarinnar er að einn mannanna braust inn í bílanna en hinir tengdust málinu annað hvort með því að hafa keypt hluta þýfisins eða hafa verið kunnugt um innbrotið. 

Í framhaldi af þessu eru bíleigendur enn og aftur hvattir til að læsa ökutækjum sínum þegar þau eru yfirgefin og skilja ekki eftir verðmæti í þeim.