16 Nóvember 2023 08:56

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um eftirfarandi aðgang íbúa að Grindavík í dag, 16. nóvember.

Búið er að hafa samband við þá íbúa Grindavíkur sem eiga þess kost að fara inn í bæinn í dag.   Vakin er athygli á því að þeir einir fá að fara inn í bæinn sem aðgerðastjórnin í Reykjanesbæ hefur haft samband við.

Aðkomuleið fyrir íbúa til verðmætabjörgunar í dag verður einungis um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut.

Íbúar eru upplýstir um framkvæmdina og hvenær þeir eiga að mæta við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar.  Íbúar verða fluttir með björgunarsveitarbifreiðum frá söfnunarstað utan Grindavíkur og frá heimilum í Grindavík til baka.

Ef tími gefst til verður haft samband við forsvarsmenn fyrirtækja og þeim hleypt inn á mesta hættusvæðið.

Áætlunin getur breyst án fyrirvara, en þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglu.

Í dag eru viðbragðsaðilar að vinna inn á mesta hættusvæði Grindavíkur.  Til að tryggja öryggi viðbragsaðila og íbúa verður fjölmiðlafólki ekki hleypt inn fyrir lokunarpósta í dag.

Til athugunar fyrir íbúa:

             Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara

             Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili

             Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað

             Munið eftir húslykli

             Búr fyrir gæludýr ef þörf er á

             Poka eða annað undir muni

             Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.

             Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.

             Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk

             Mjög mikilvægt er að allir sem koma að þessari aðgerð hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð og virði tímamörk.